Ferðaskrifstofan Vesturferðir ehf. var stofnuð árið 1993 og hefur fest sig í sessi sem öflugasti ferðaskipuleggjandi og ferðaskrifstofa Vestfjarða.  Eigendur Vesturferða eru um 60 mismunandi samtök, sjóðir, fyrirtæki og einstaklingar á svæðinu og er áhersla lögð á að tryggja gott samstarf á milli minni ferðaþjóna á svæðinu.

Með ferðunum okkar viljum við hjálpa ykkur að upplifa leyndardóma Vestfjarða. Hvort sem þið stefnið á gönguferð, dagsferð, helgarferð eða lengri ferð um Vestfirði, þá getum við aðstoðað ykkur með allt sem þið þurfið; samgöngur, gisting eða afþreying.

 

Starfsfólk:

Jón Auðun Auðunarson

Framkvæmdarstjóri

jon@vesturferdir.is

——————————

Maria Anna Maríudóttir

Sölu- og þjónustufulltrúi 

Almennar ferðir og sérferðir

info@westtours.is

——————————

Karlotta Markan

Umsjónarmaður skemmtiferðaskipa

cruise@vesturferdir.is