Læknishúsið á HesteyriUppfært: 26.07
Kjötsúpuferð á Hesteyri
Sumarið hefur ætt áfram og ágústmánuður er handan við hornið. Að venju verðum við á Vesturferðum með kjötsúpuferð á Hesteyri um verslunarmannahelgina. Laugardaginn 31. júlí verður siglt frá Ísafirði yfir á Hesteyri þar sem gestum býðst að fara í leiðsagða ferð um svæðið áður en haldið er til Binnu í læknishúsinu. Þar verður boðið upp á rjúkandi íslenska kjötsúpu og pönnsur í eftirrétt. Eftir matinn verður kvöldvaka með söng, glensi og tilheyrandi ærslalátum fram eftir kvöldi. Gestir verða síðan ferjaðir aftur á Ísafjörð í kringum miðnættið.