English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir
Uppfært: 06.11 2009

Vestfirðir

Vestfirðir eru í hugum margra sveipaðir dulúðlegum blæ. Fuglabjörgin skaga fram í hafið, fólkið er glaðlegt og skemmtilegt, litlu þorpin lúra undir bröttum fjöllum. Fossinn Dynjandi hellist fram af fjallinu með þungum dyn, bjargfuglinn gargar og refurinn gaggar.

Á þessari síðu söfnum við saman hinu og þessu sem ferðalöngum gæti nýst við undirbúning ferðalagsins eða á meðan á því stendur. Síðunni er ekki ætlað að vera heildaryfirlit yfir Vestfirði að neinu leyti.

Aðrar upplýsingalindir

Vestfjarðavefurinn

Westfjords.is

Ísafjarðarbær

BB.is


Flóðatöflur 2010

Þegar gengið er á Hornströndum eða keyrt fyrir Svalvoga þarf að sæta sjávarföllum. Því­ er hentugt að hafa flóðatöflu meðferðis. Hér höfum við sett flóðatöflu upp byggða á upplýsingum frá Sjómælingum Íslands, ferðamönnum til hægðarauka. Afla þarf upplýsinga sérstaklega um hverja ófæru hversu nálægt háfjöru maður þarf að vera til að ganga þurrum fótum, en yfirleitt er nóg að vera 2 tí­mum fyrr eða seinna. Sækja skjalið.

Meira »

Fljótaví­k á Hornstrandakortinu (lmi.is)
Fljótaví­k á
Hornstrandakortinu
(lmi.is)

Kort af Vestfjörðum

Ný útivistarkort Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa staðið fyrir því að gefa út göngukort fyrir allan Vestfjarðakjálkann. Göngukortin eru mjög vönduð og eru kærkomin fyrir þá ferðalanga sem hafa gaman að útivist. Göngukortin eru skýr og auðveld í notkun. Á þeim er að finna um 300 gönguleiðir með gps- punktum. Kortin nýtast bæði göngufólki, reiðfólki og hjólafólki, svo fáein not séu nefnd. Hægt er að kaupa kortið á öllum betri ferðamannastöðum á Ves...

Meira »

Hvernig kemst ég til Ísafjarðar

Bíll, flug, rúta? 1. Keyrandi Með því að fara akandi gefst frábært tækifæri til að njóta umhverfisins og fjölda spennandi afþreyingarmöguleika á leiðinni. Hér eru fjórir mismunandi akstursmöguleikar frá Reykjavík. a) Með Baldri yfir Breiðafjörð. Frá Reykjavík að Stykkishólmi, þaðan sem ferjan Baldur fer, eru 172 km. Siglingin yfir Breiðafjörð tekur um 2,5 klukkutíma og er möguleiki á að stoppa í Flatey á leiðinni. Ferjan leggur að á Brján...

Meira »

Leiðarlýsingar Gísla Hjartar

Leiðarlýsingar Gí­sla Hjartar birtast hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Þetta efni er uppistaðan í­ vönduðu ársriti Ferðafélagsins Útvistar sem út kom vorið 2001. Gí­sli fékk heiðursskjal og peningav...

Meira »

Hornstrandir

Vesturferðir bjóða upp á fjölbreytta þjónustu við Hornstrandafara. DagsferðirVið bjóðum upp á fjórar dagsferðir á Hornstrandir. Þrjár þeirra eru gönguferðir enn ein er heimsókn í þorpið við Hesteyrarfjörð. Í þeirri ferð er farið í land og rölt um eyrina undir leiðsögn, að lokum er komið við í Læknishúsinu þar sem léttar kaffiveitingar eru bornar á borð. Nánari upplýsingar um kaffiferð á Hesteyri hér. Á þriðjudögum förum við í göngu milli Að...

Meira »

Atburða­dagatal

Vestfirðir státa af blómlegu lista- og menningarlí­fi þar sem allt árið um kring er hægt að finna eitthvað við sitt hæfi. Margir Íslendingar halda að lí­tið sé um að vera á útkjálkanum, svo er aldeilis ekki, hvorki að sumri né vetri til. Hér er örlí­till listi yfir þá viðburði sem árlegir eru hér fyrir vestan.

Meira »

Myndir







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF