Vesturferðir > Ferðirnar > Dagsferðir
Eyjan Vigur er einn af þeim stöðum sem ferðafólk til Vestfjarða verður að heimsækja.
Á Hesteyri er gaman að koma. Þar byggðist upp þyrping húsa þegar Norðmenn byggðu síldar- og hvalveiðistöð, á Stekkeyri rétt utan við Hesteyri, árið 1894. Mörg þeirra húsa standa enn í dag, s.s. gamla skólahúsið, búðin og læknishúsið. Á Hesteyri hefur, eftir að ábeit sauðfjár var hætt, orðið æ gróðursælla með hverju árinu og er fuglalífið fjölskrúðugt. Selir eru tíðir gestir á staksteinum í firðinum, og einnig refir sem oft sjást á vappi utan við byggðina. Óteljandi fossar berja hlíðarnar inn eftir öllum firðinum. Friðurinn og villt náttúran valda því að það er eins og tíminn standi í stað.
Hornstrandir hafa í seinni tíð fengið á sig dulúðlegan blæ. Með myndum eins og Börnum náttúrunnar hefur skapast æ meiri áhugi á að kynnast þessu merka svæði. Í tímaþröng nútímans er því tilvalið að taka sér einn dag og fá örlítið sýnishorn af því hvernig fjöllin, húsin, gróðurinn og fjarlægðin frá gsm-sambandinu spila saman.
Ísafjarðardjúp er mjög vel fallið til kajakferða bæði fyrir byrjendur sem lengra komna. Einstök fegurð fjarðanna er sjálfsögð í hugum heimamanna en er aðkomumönnum óvænt upplifun. Fegurð Snæfjallastranda með snjóinn í hlíðunum og nærvera Drangajökuls, gefa sterklega til kynna að ekki er langt í norðurheimskautsbauginn. Folafótur er lítill skagi milli Seyðisfjarðar og Hestfjarðar og er svæðið ótrúlega skemmtilegt fyrir kajakróður, náttúran og dýralíf er einstakt. Á þessu svæði er mikið af sel og stundum er þar hvali að sjá.
Gönguferð frá Hesteyri að Látrum í Aðalvík með viðkomu í Miðvík. Þessari ferð svipar í ýmsu til Gönguferð frá Aðalvík til Hesteyrar sem farin er á þriðjudögum. Þessi ferð er farin á laugardögum.
Kajakíþróttin hefur undanfarin ár rutt sér til rúms svo um munar. Marga dreymir um að prófa stutta siglingu og hér gefst tækifærið til þess. Hvernig væri því að skella sér í tveggja tíma ferð í fallegu umhverfi milli brattra fjallshlíða á Pollinum í Skutulsfirði.
Hornvík er án efa einn afskekktasti staður landsins og af mörgum talinn sá fallegasti. Byggð lagðist þar af fyrir miðja 20. öldina en í dag er þar útivistarperla sem allt of fáir fá að njóta vegna erfiðs aðgengis. Eina leiðin til að komast í Hornvík er með bát og er þessi ferð sniðin fyrir þá sem vilja kynnast þessum merka stað.
Gönguferð um eyrina er tilvalin leið til að fletta hulunni af undrum Ísafjarðar og draga fram í dagsljósið forvitnilegar staðreyndir sem ferðafólk jafnt sem heimamenn hafa gaman af.
Sjóstöng hentar öllum og er tilvalin dagsferð fyrir einstaklinga, minni hópa og fjölskyldur. Siglt er frá Flateyrarhöfn í einstöku umhverfi milli tignarlegra fjalla Önundarfjarðar. Gleði og spenna farþeganna um borð leynir sér ekki þegar vænn fiskur er dreginn yfir borðstokkinn.
Vesturferðir í samstarfi við Eaglefjord á Bíldudal bjóða upp á ferðir um Arnarfjörð. Um er að ræða báts- og gönguferð frá Bíldudal í Geirþjófsfjörð og göngu með leiðsögn um fjarðarbotninn. Heitt er á könnunni um borð í bátnum.
Sérkenni Skáleyja eru náttúrufegurð, víður fjallahringur og fjölbreytt landslag. Í eyjunum er mikið útfiri og svipmótið því síbreytilegt eftir sjávarhæð. Fuglalífið er auðugt og merkilegur álfaklettur geymir sögur af samlífi huldufólks og manna.
Vigur hefur á síðustu árum orðið að einum helsta viðkomustað ferðafólks á Vestfjörðum. Eftir ljúfa bátsferð er tekið land í Vigur og þar er sem tíminn standi í stað. Heimilisfólk býður gesti velkomið með heillandi gestrisni á meðan náttúran og fuglalífið skarta sínu skærasta.
Ferð fyrir söguþyrsta. Riðið út með Dýrafirði og fræðst um sögu frægasta Vestfirðings fyrr og síðar, Gísla Súrsonar. Við Meðaldal er farið niður að sjó, út fyrir Haukadalsnes og inn í Haukadal þar sem er aðal sögusvið Gísla sögu.
Grímsey á Steingrímsfirði er stærsta eyja fyrir Ströndum. Þjóðsagan segir að Grímsey hafi orðið til þegar þrjú tröll ætluðu sér að grafa Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.
Þessi ferð er sérsniðin fyrir hópa sem gista á Ísafirði eða nágrenni, en leggja svo af stað snemma að morgni áleiðis til Hólmavíkur. Gert er ráð fyrir að farþegar sigli í Vigur og rútan aki í Ögur og taki farþega þar að lokinni skoðunarferðinni. Þannig sparar hópurinn sér tíma í rútu um firði og fjöll.
Eyjan Vigur er sjálfsagður áfangastaður allra sem leggja leið sína vestur á firði. Íbúar eyjunnar bjóða fólk velkomið með rólegu og afslöppuðu fasi og þar er sem tíminn standi í stað. Þessi ferð er aðeins ætluð fyrir hópa.
Á Vestfjörðum mætast gamli og nýji tíminn. Við hliðina á 17. aldar húsunum í Neðstakaupstað er hátækni fiskiðnaður og allstaðar má sjá togstreitu gamla tímans og hins nýja.
Dynjandi, eða Fjallfoss, er einhver fallegasti foss landsins. Jón Sigurðsson er einhver dáðasti Íslendingur fyrr og síðar. Hví ekki að sameina þetta tvennt og skella sér í Arnarfjörðinn?
Þessi ferð er samtvinnungur af Krókum og kimum Ísafjarðar og Vigurferðinni vinsælu.
Heydalur er kjarri vaxinn og eftir botni hans liðast Heydalsá með smáfossum og flúðum. Í dalnum eru nokkur stór gil sem setja svip á umhverfið. Heydalur í Mjóafirði er í um 130 km fjarlægð frá Ísafirði og 110 km frá Hólmavík.
Kynning á Íslenska hestinum og búnaðinum sem honum fylgir. Einnig tölt nokkra hringi inni í reiðhöll Hestamannafélags Storms að Söndum í Dýrafirði. Tilvalið fyrir byrjendur.
Stutt ferð um nánasta umhverfi Sanda. Þægileg ferð í góðu og rólegu umhverfi. Ferðin hentar vel byrjendum og fólki sem hefur aldrei farið á hestbak.
Mjóifjörður er einstaklega vel fallinn til kajaksiglinga. Veðursæld er mikil og útsýni fagurt út fjörðinn norður að Drangajökli.
Gengið er inn Heydal en hann er kjarri vaxinn og eftir botni hans liðast Heydalsá með smáfossum og flúðum. Í botni dalsins rennur Þverá í stöllum í Heydalsá. Þverá kemur úr Ausuvatni þangað sem ferðinni er heitið. Í dalnum eru nokkur stór gil sem setja svip sinn á umhverfið. Í Ausuvatni er mjög fallegur og pattaralegur urriði. Miðlungsferð - þáttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Heimsskautsrefurinn var eina spendýrið á Íslandi þegar land var numið, og lifðu hér í sátt og samlyndi við náttúruna. Á Hornströndum lifa langflestir refir á Íslandi, sem gerir ferðalöngum kleyft að sjá refinn í sínu náttúrulega umhverfi.
Að Söndum hefur alltaf verið mikil og rík menning fyrir hestamennsku. Hestaferðin að Söndum er þægileg og í góðu og rólegu umhverfi. Riðinn er hringur frá Söndum upp að því sem heitir Múli, niður að Sandá og niður í fjöru. Riðið er eftir svörtum sandi og síðan heim. Ferðin hentar byrjendum vel.