English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Ferðirnar > Fundir og ráðstefnur

Hótel Ísafjörður við Silfurtorg
Hótel Ísafjörður við Silfurtorg

Nánar

Uppfært: 31.10 2009

Fundir og ráðstefnur

Þegar velja þarf stað fyrir fund eða ráðstefnu er að mörgu að hyggja. Gistiaðstaða, fundasalir og samgöngur eru allt þættir sem vega þungt í­ staðarvalinu. Aðdráttarafl staðarins og vonin um að fundagestir fari ánægðir heim eru einnig mikilvægir þættir. Þeir sem halda fundi á Ísafirði eru sammála um að það sé öðruví­si upplifun að koma til Vestfjarða. Ísafjörður er því­ kjörinn staður til þess og njóta stórbrotinnar náttúru og kynnast vinalegu fólki í­ bland við vinnu. Það er gott að brjóta vinnuna upp af og til og blanda þessu tvennu saman.

Við bjóðum þeim sem þurfa að halda fund eða ráðstefnu aðstoð við skipulagningu dagskrár, skráningu og bókanir gesta, útvegun dægradvalar, auk þess að annast akstur gesta til og frá flugvelli eftir þörfum, gistingu og veitingar. Við skipuleggjum dvölina með hæfilegri blöndu af vinnu og óvæntum uppákomum og leggjum áherslu á að faglært og vant starfsfólk skipi hverja stöðu svo ferðin verði sem ánægjulegust.

Meðal ánægðra viðskiptavina okkar síðustu ár eru Verkstjórasamband Íslands, Hafnasamband Íslands, Ísafjarðarbær og fleiri. Árið 2008 munu Vesturferðir sjá um þing Skógræktarfélags Íslands.

Eftirfarandi eru upplýsingar um þá aðstöðu sem í­ boði er. Frekari upplýsingar fást hjá Vesturferðum í­ sí­ma 456-5111.

Fundaraðstaða

Hótel Ísafjörður Aðstaða: Á Hótel Ísafirði eru 2 salir á fyrstu hæð, aðalmatsalur hótelsins og fundasalur. Á hótelinu er mjög góð aðstaða fyrir minni fundi fyrir u.þ.b. 30-50 manns. Tæki: Skjávarpi, þráðlaus nettenging, sjónvarp, myndbandstæki, myndvarpi, sýningartjald, tússtafla, flettitafla, ljósritunarvél, fax, hátalarkerfi. Hægt er að útvega upptökukerfi og önnur tæki sem óskað er efti...

Meira »

Gisting

Hótel Ísafjörður Hótel Ísaförður er staðsett við Silfurtorg í­ hjarta Ísafjarðar, í­ næsta nágrenni hótelsins er að finna flestar verslanir, þjónustufyrirtæki og opinberar stofnanir á Ísafirði. Fjöldi herbergja: 36 - öll tveggja manna. Boðið er upp á reyklaus herbergi og eitt deluxe herbergi....

Meira »

Samgöngur

Flugsamgöngur Flugfélag Íslands flýgur að jafnaði 2 ferðir á dag frá Reykjaví­k til Ísafjarðar allt árið. Flugtí­mi milli Ísafjarðar og Reykjaví­kur er aðeins 35 mí­nútur. Samgöngur á landi Leiðin um Djúp til Ísafjarðar er opin allt árið eins og veður leyfir. Milli Reykjaví­kur og Ísafjarðar eru 435 km. og tekur aksturinn u.þ.b. 5,5 klst. ef ekið er um Djúp. Að sumarlagi er einnig hægt að ak...

Meira »

Árni á Vöðlum tekur lagið
Árni á Vöðlum tekur lagið

Dægradvöl

Hver árstí­ð hefur sí­na töfra og því­ eru tillögurnar breytilegar, en alltaf er hægt að komast í­ snertingu við landið og töfra þess. Á vorin eru dagarnir langir og næturnar bjartar. Náttúran er að vakna út vetrardvala, fuglinn úar og lækirnir skoppa glaðlega niður hlí­ðarnar. Sumrin eru björt og hlý og þá eru óteljandi möguleikar á ýmis konar ferðum og skemmtun. Á haustin skartar náttúr...

Meira »

Önnur þjónusta

Í boði er öll þjónusta fyrir fundagesti s.s fundarskráning, skipulagning skoðunarferða, útvegun gagna, ljósritun og annað sem þörf er á. Skráningar Vesturferðir geta tekið við og séð um skráningar á ráðstefnur og fundi. Fyrir minni fundi er hægt að gera það með tölvupósti og síma, þ.e. upp á gamla mátann, en fyrir stærri viðburði er lítið mál að setja upp bókunarkerfi á netinu til að sjá um s...

Meira »







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF