Úr óvissuferð.
Nánar
- 10. bekkur á rútuferðalagi um Vestfirði
Uppfært: 31.10 2009
10. bekkingar
Æ algengara verður að nemendur í 10. bekk fari í stutt ferðalag að hausti eða að vori að loknum samræmdum prófum. Vestfirðir hafa upp á margt að bjóða fyrir slíka hópa. Möguleikarnir eru óþrjótandi til að fræðast og skemmta sér í góðra vina hópi.
Hægt er að keyra um Vestfirðina og stoppa nokkrar nætur á Ísafirði. Með fylgir tillaga að slíkri ferð. Þar er til dæmis sjóglæfradagur, þar sem klifrað er í Arnarneshamri, stokkið ofan af klettinum, róið og kajak og ýmsar hundakúnstir leiknar.
En ferðirnar geta líka verið öðruvísi. Þannig fara bekkir nokkuð á Hornstrandir á haustin í gönguferð þar sem reynt er á þolrif hópsins og hann hristur saman fyrir átök vetrarins með því að vaða nokkrar ár og fá blöðrur milli tánna. Tillaga að slíkri ferð fylgir einnig með. Í Jökulfjörðum eru bæði hús að Hesteyri og í Grunnavík. Þar er hægt að sofa inni, eða nýta sér þessi hús allavega fyrir kennarana og eldamennskuna og láta skarann, ef stór er, gista í tjöldum.
Þó við hér á Ísafirði álítum Ísafjörð vera nafla alheimsins, eru aðrir staðir á svæðinu mjög heppilegir fyrir skemmtilega ferð. Þar eru til dæmis álitlegir staðir á borð við Látrabjarg og ævintýradalurinn Heydalur í Mjófirði, þar sem hestaferðir, kajakróður, gönguferðir og náttúruskoðun er brotin upp með dýfu í náttúrulegan heitan pottinn í dalnum.
Leiðsögumenn og fararstjórar eru hér fjölmargir og sérstaklega mikið af skemmtilegum kennurum og leiðsögumönnum sem segja skemmtilega frá plöntu- og dýralífi, sögu, menningu og þvíumlíku. Þá eru hér leiðsögumenn sem gott er að hafa með sér í gönguferðum.
Hér á vefnum eru tvær tillögur að ferð á Vestfirði. Ekkert verð fylgir, og það af ástæðu. Hópar koma nefnilega í mismunandi stærðum og gerðum og hafa blessunarlega mismunandi áhugamál og skoðanir. Sumir vilja koma fljúgandi, aðrir keyrandi. Sumir vilja þétta dagskrá, aðrir vilja bara leyfa hópnum að leika lausum hala. Ekkert mál er að hringja í mig eða senda tölvubréf með áætluðum fjölda og í hvaða áttir hugmyndir hópsins hneigjast, og ég sendi tilboð um hæl.
Óvissuferð á Vestfjörðum
Hópeflisferð á Hornströndum
Hugmyndir fyrir rútuhópa

Rútur Stjörnubíla á
ferð.
Og nei, þessi
mynd er ekki tekin á
þjóðvegi heldur utan
alfaraleiðar.
Hópur 10. bekkinga á ferð er orkumikill og helst ekki endalaust við í rútu. Því er gott að hafa þetta í huga:
Ef komið er og farið með rútu, er sniðugt að koma norður Djúpið og fara suður vesturleiðina. Þær eru álíka langar. Ef keyrt er norður Strandir er hægt að koma við í Sauðfjársetrinu í Steingrímsfirði og fara á Galdrasýninguna á Hólmavík. Í Heydal í Mjóafirði er hægt að fara á hestbak. Á vesturleiðinni er hægt að stoppa í Hau...
Meira »