Ísafjörður og nágrenni hafa ótal möguleika á hjólreiðum, bæði eftir þjóðvegunum en líka eftir vegaslóðum og gömlum fjallvegum. Mörgum þykir líka sniðugt að hjóla út fyrir bæinn og fara svo í stutta fjallgöngu. Vesturferðir hafa nokkur vel útbúin fjallahjól til leigu á skrifstofu sinni við Aðalstræti á Ísafirði. Einnig er hægt að fá hjól fyrir börn ef pantað er með einhverjum fyrirvara. Á Vesturferðum er hægt að nálgast góðar upplýsingar...