Heimsókn á Hesteyri
- Þar sem tíminn stendur í stað -
Á Hesteyri er gaman að koma. Þar byggðist upp þyrping húsa þegar Norðmenn byggðu síldar- og hvalveiðistöð, á Stekkeyri rétt utan við Hesteyri, árið 1894. Mörg þeirra húsa standa enn í dag, s.s. gamla skólahúsið, búðin og læknishúsið. Á Hesteyri hefur, eftir að ábeit sauðfjár var hætt, orðið æ gróðursælla með hverju árinu og er fuglalífið fjölskrúðugt. Selir eru tíðir gestir á staksteinum í firðinum, og einnig refir sem oft sjást á vappi utan við byggðina. Óteljandi fossar berja hlíðarnar inn eftir öllum firðinum. Friðurinn og villt náttúran valda því að það er eins og tíminn standi í stað.
Bátsferðin frá Ísafirði á Hesteyri tekur um rúman klukkutíma. Þegar komið er í land er gengið um eyrina undir leiðsögn, þar sem saga svæðisins er kynnt, húsin og náttúrulífið skoðað og komið við á gamla kirkjustaðnum. Gangan endar í hinu fallega Læknishúsi, sem haldið hefur verið vel við og þar eru kaffiveitingar bornar á borð. Ferðin tekur alls 4 til 5 tíma.
Brottför: 16/6-22/8
Tími: 14:00
Lengd ferðar: 4-5 klst
Innifalið: Bátsferð, leiðsögn og kaffiveitingar í Læknishúsinu
Auðkenni ferðar: V06
Lágmark: 2
Flokkar: dagsferðir, hornstrandir, bátar, ferðir, sumar
| Verð: | 13+ ára | 0-2 ára | 3-12 ára |
|---|
| 6.200 | 0 | 3.100 |
| | Verð fyrir 2010 |
Myndir
Á korti