Nánar
- Sumarbæklingurinn 2010
- Vörulisti Vesturferða 2010
Uppfært: 11.02
Fyrir bransafólk
Ferðaskrifstofur eru mikilvægustu viðskiptavinir okkar. Hérna eru svör við algengustu spurningunum eða fyrirspurnunum, og okkar bestu tilraunir til að svara þeim.
Ég hef aldrei komið til Vestfjarða. Get ég komið í kynnisferð?
Já, það gæti bara meira en vel verið. Við reynum að bjóða fólki hingað vestur á vorin, og nú síðast í samstarfi með Markaðsstofu Vestfjarða. Hafið endilega samband við Jón Pál Hreinsson á jonpall@westfjords.is
Hver eru verðin til ferðaskrifstofa?
Hafðu samband og við sendum þér ferðaskrifstofuverðin. Við gefum 10-20% þóknun af allri seldri þjónustu.
Product Manual?
Fyrir VestNorden gefum við út vörulistann okkar.
Hér er hægt að skoða nýjustu útgáfuna, en einnig er hægt að fá nokkur eintök send með pósti.
Mig vantar myndir. Hvað get ég gert?
Við eigum fullt af myndum sem bíða eftir að verða prentaðar við hliðina á lýsingunni á ferð um Vestfirði.
En ég er blaðamaður
Markaðsstofa sér af miklum myndarskap um blaðamenn sem vilja skrifa um Vestfirði.

Sumarbæklingur Vesturferða
Sumarbæklingurinn 2010 kemur út á næstu dögum. Pantaðu núna eintakið þitt, eða hinkraðu eftir að hann komi á upplýsingamiðstöð nálægt þér.
Bæklingurinn er með sömu ferðum og við höfum selt í áraraðir, en einnig bætast við nýjar ferðir. Þar ber hæst þéttari áætlun báta, hestaleiga að Söndum í Dýrafirði og fleira. Auk þessa eru í bæklingnum efni frá mörgum af helstu ferðaþjónustufyrirtækjum á Vestfjörðum.
Sumarbæklingurinn á pdf formi er hé...
Meira »
Sjá hér: vörulisti á ensku.
Meira »