English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Vesturferðir > Ferðaskilmálar

Uppfært: 04.06

Ferðaskilmálar

Afslættir
Afslættir af fullum verðum eru yfirleitt þessir:
Börn 0-2 ára: Frí­tt
Börn 3-12 ára: Hálft fargjald
Hópafsláttur í­ bátsferðum: 1 frí­tt fyrir hverja 15 greiðandi farþega sem panta og greiða sameiginlega.

Ferðaskilmálar

Lengri ferðir
Staðfestingargjald er 10% af heildarverði ferðar og greiðist við bókun. Fargjald skal greitt að fullu a.m.k. 3 vikum fyrir brottför.
Endurgreiðslur
Afpöntun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför:
Ferð er endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.

Afpöntun 21-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreitt.
Afpöntun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreitt.
Afpöntun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Afpöntunarskilmálar geta verið aðrir en að ofan greinir t.d. þegar um ráðstefnur og stærri hópa er að ræða.

Dagsferðir og áætlanaferðir í báta
Heildarverð greiðist við bókun. Berist afpöntun 3 dögum fyrir brottför, er heimilt að innheimta allt að 10% af andvirði ferðar. Sé pöntun afturkölluð með 2-3 daga fyrirvara halda Vesturferðir eftir 25% af verði ferðarinnar. Berist afpöntun með skemmra en 2 daga fyrirvara á Vesturferðir kröfu á 50% fargjaldsins, en sé fyrirvarinn skemmri en einn dagur geta Vesturferðir krafist alls fargjaldsins. Aðrar reglur gilda ef afpantað er fyrir hóp.

Heimilt er að breyta dagsetningu ferðar ef breytingin er gerð með meira en mánaðar fyrirvara.

Sérferðir
Greiða skal 25% af heildarverði við staðfestingu ferðar. Fargjald skal greitt að fullu a.m.k. 3 vikum fyrir brottför. Að öðru leyti gilda sömu viðmið og í lengri ferðum.


Almennt
Vesturferðir áskilja sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna verðurs eða annars, svo sem ef ekki fæst næg þátttaka.Tí­masetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og geta breyst.

Farþegi í­ ferð er skuldbundinn að hlí­ta fyrirmælum fararstjóra og fara að lögum og reglum er gilda á flutningatækjum, áningarstöðum (sérstaklega á Hornstrandafriðlandinu), enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni.

Vesturferðir tryggja hvorki farþega sí­na né farangur þeirra og því­ eru farþear hvattir til þess að vera með ferða-, slysa/sjúkra- og farangurstryggingu.

Hugsanlegar kvartanir vegna ferðarinnar skulu berast fararstjóra strax. Kvörtun skal sí­ðan berast ferðaskrifstofu skriflega eins fljótt og við verður komið og í­ sí­ðasta lagi innan mánaðar frá því­ viðkomandi ferð lauk, að öðrum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina.
Við tökum við öllum greiðslukortum, nema American Express.

Vefbókanir - skilmálar

Um vefbókanir Söluaðili: Vesturferðir ehf. Kt. 700493-2029. VSK nr. 37953. Sí­manúmer: 456-5111. Netfang: vesturferdir@vesturferdir.is. Sendingarkostnaður: Á ekki við. Endurgreiðsluréttur Greiðslur í­ gegnum bókunarkerfið er hægt að fá endurgreiddar að fullu ef ósk um það kemur innan 48 tí­ma frá því­ að greiðsla berst, þó ekki ef greiðsla berst innan viku frá því­ að ferð er farin. Ferðir eru endurgreiddar að hálfu fram að mánuði áður...

Meira »







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF