English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Ferðirnar > Ganga frá Hesteyri að Látrum

Ganga frá Hesteyri að Látrum

- Dagsganga í friðlandinu -
Gönguferð frá Hesteyri að Látrum í Aðalvík með viðkomu í Miðvík. Þessari ferð svipar í ýmsu til Gönguferð frá Aðalvík til Hesteyrar sem farin er á þriðjudögum. Þessi ferð er farin á laugardögum.

Farið er frá Ísafirði á laugardögum frá 26. júní til 7. ágúst 2010. Lagt er af að morgni og siglt til Hesteyrar. Eftir stuttan stans á Hesteyri er lagt af stað upp Hesteyrardal og gengið upp í Hesteyrarskarð milli fellana Búrfells og Kagrafells. Úr Hesteyrarskarði er mjög fallegt útsýni yfir Aðalvík og Straumnes. Úr Hesteyrarskarði er gengið niður í Miðvík og haldið að bæjarstæðinu þar sem bærinn Neðri-Miðvík stóð. Farið er að Miðvíkurósi. Frá Miðvíkurósi er gengið fyrir Kleif (Mannfjall). Í Kleifinni er mikill sand- og ísfláki sem gaman er að skoða. Þaðan er gengið að Stakkadalsósi og hann vaðinn. Síðan er gengið meðfram sjónum og yfir að Látrum þar sem báturinn bíður og flytur göngufólkið aftur til Ísafjarðar. Stefnt að komu þangað um kvöldmatarleytið.

Brottför: 26/6 - 14/8
Tími: 09:30
Lengd ferðar: 9-10 klst.
Innifalið: Bátsferðir: Ísafjörður-Hesteyri og Látrar-Ísafjörður. Leiðsögn. Flugnanet ef þarf.
Auðkenni ferðar: V05
Lágmark: 4
Flokkar: dagsferðir, hornstrandir, ganga, ferðir, sumar

Verð: 13+ ára0-2 ára3-12 ára
15.30007.650
 Verð 2010

Myndir



Á korti







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF